14.06.04 - 17:25
Elvar Geir Magnússon
Paul Butler til Leeds (Staðfest)

Geta stuðningsmenn Leeds United farið að gleðjast á næsta leiktímabili?


Geta stuðningsmenn Leeds United farið að gleðjast á næsta leiktímabili?

Leeds United, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, hefur krækt í varnarmanninn Paul Butler frá Wolves. Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið í dag en áður var það sóknarmaðurinn Julian Joachim. Báðir þessir leikmenn koma á frjálsri sölu.
Butler er 31.árs og kemur með aukna reynslu inn í lið Leeds og á líklega eftir að verða mikilvægur í baráttunni um að endurheimta úrvalsdeildarsætið. Liðið hefur misst nokkuð marga leikmenn og enn fleiri eru á förum en stjórn liðsins vinnur nú hörðum höndum að því að fylla upp í skörðin.
