Fotbolti.net
14.06.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Brottrekstur sem boðar stórar breytingar hjá Juventus

Brottrekstur sem boðar stórar breytingar hjá Juventus
Canon

Mynd: EPA

Ítalskir fjölmiðlar virðast vera sammála um að það séu stórar breytingar framundan hjá Juventus í sumar. Félagið byrjaði á því að reka framkvæmdastjórann sinn Damien Comolli eftir að liðið missti af Meistaradeildarsæti á nýliðnu tímabili.
Fleiri brottrekstrar munu fylgja og er hægt að reikna með verulegum breytingum innan stjórnar félagsins. Búist er við að Giovanni Carnevali muni taka við starfi framkvæmdastjóra og fær Luciano Spalletti tækifæri til að vera áfram við stjórnvölinn sem aðalþjálfari meistaraflokks og leiða leikmannahópinn í gegnum breytingarnar.

Félagið ætlar að stefna í aðra átt en það hefur verið og mun leggja mikið kapp á að krækja í ítalskar fótboltastjörnur í stað þess að einbeita sér að erlendum leikmönnum.

Búast má við að ýmsir leikmenn verði seldir og lánaðir út og þá eru mikilvægir hlekkir í byrjunarliðinu orðnir falir fyrir rétta upphæð. Þar má helst nefna brasilíska landsliðsmanninn Gleison Bremer og ítalska landsliðsmanninn Andrea Cambiaso sem hafa vakið áhuga ýmissa stórvelda víða um Evrópu.

Federico Chiesa, Giovanni Leoni og Cher Ndour eru sagðir vera helstu skotmörk Juventus í sumarglugganum. Chiesa og Leoni eru báðir samningsbundnir Liverpool á meðan Ndour leikur fyrir Fiorentina.

Yildiz ósnertanlegur - Vilja halda Vlahovic áfram
TENGT EFNI

Yildiz ósnertanlegur - Vilja halda Vlahovic áfram

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Brottrekstur sem boðar stórar breytingar hjá Juventus
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.