Ítalska félagið Juventus ætlar að reyna halda sem flestum áfram hjá félaginu en Damien Comolli, framkvæmdastjóri félagsins, viðurkennir að það þarf að skera niður kostnað í sumar.
Juventus rétt missti af Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð sem hefur gríðarleg fjárhagsleg áhrif á félagið.
Como og Roma tóku síðustu lausu sætin í Meistaradeildina og skildi Juventus eftir með sárt ennið.
Comolli segir að einhverjir leikmenn gætu þurft að yfirgefa félagið í sumar, en aðeins einn leikmaður er ósnertanlegur.
„Við gætum þurft að selja meira en við áttum von á þar sem við komumst ekki í Meistaradeildina. Við þurfum að safna fjármunum og skera niður kostnað.“
„En Kenan Yildiz er ósnertanlegur. Hann er framtíð félagsins og þá værum við líka til í að halda Dusan Vlahovic áfram hjá félaginu,“ sagði Comolli.
Yildiz er ekki bara framtíð Juventus heldur líka gulldrengur Tyrkja, en hann hefur verið orðaður við stærstu félög heims. Vlahovic er hins vegar að renna út á samningi, en hann hefur verið á mála hjá Juventus frá 2021.


