Fotbolti.net
14.06.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Þurfti að yfirgefa Liverpool til að komast í landsliðið

Þurfti að yfirgefa Liverpool til að komast í landsliðið
Canon

Mynd: Bayer Leverkusen

Jarell Quansah var seldur frá uppeldisfélagi sínu Liverpool síðasta sumar fyrir 35 milljónir punda og hefur verið að gera frábæra hluti í Þýskalandi.
Hann var fljótur að stimpla sig í sessi sem mikilvægur hlekkur í varnarlínu Bayer Leverkusen og skoraði 5 mörk í 44 leikjum í öllum keppnum.

Quansah er 23 ára gamall og var valinn í landsliðshóp Englands sem tekur þátt á heimsmeistaramótinu. Hann var valinn framyfir varnarmenn á borð við Harry Maguire, Levi Colwill og Trent Alexander-Arnold og það hefur eflaust hjálpað til að Quansah getur spilað bæði sem miðvörður og hægri bakvörður.

Quansah var mikilvægur hlekkur upp unglingalandslið Englands en tók ekki sín fyrstu skref með A-landsliðinu fyrr en hann var kominn til Leverkusen. Hann fékk lítið af tækifærum hjá Liverpool og var þreyttur á að vera varaskeifa.

„Það var mjög erfið ákvörðun að fara frá Liverpool síðasta sumar. Liverpool er uppeldisfélagið mitt, ég hafði verið þar allt mitt líf. Þetta var erfið ákvörðun en ég vissi að þetta væri það besta sem ég gæti gert fyrir ferilinn minn. Ég þurfti að fá að spila byrjunarliðsfótbolta," segir Quansah.

„Allir sem þekkja mig vita að ég hef mikla trú á sjálfum mér og minni getu til að spila í hæsta gæðaflokki. Ég vildi sanna það á þessu tímabili og er mjög stoltur að fá launað með kalli í enska landsliðið. Mér líður eins og ég sé að verða betri með hverjum leik sem ég spila og ég er mjög metnaðarfullur í að reyna að halda sífellt áfram að bæta mig."

Síðasta æfingaleik Englendinga seinkað - Þrumur og eldingar í Orlando
TENGT EFNI

Síðasta æfingaleik Englendinga seinkað - Þrumur og eldingar í Orlando

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Þurfti að yfirgefa Liverpool til að komast í landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.