Fotbolti.net
14.07.18 - 19:12
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Brynjar Þór: Það leit ekki út að þeir væru manni færri

Auglýsing
Brynjar Þór: Það leit ekki út að þeir væru manni færri
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Þór Gestsson stýrði sínum mönnum í ÍR til sigurs á Grenivíkurvelli í dag, sigurmark ÍR skoraði Máni Austmann Hilmarsson út vítaspyrnu undir lok leiksins.
Brynjar hrósaði Magnamönnum sem misstu mann af velli með rautt spjald í seinni hálfleik.

„Þeir voru gríðarlega sterkir og missa mann af velli með rautt og þá var eins og það væri bara slökkt á okkur, það leit ekki út fyrir að þeir væru manni færri.\"

„Það var smá titringur í lokin, menn hafa oft verið að fá á sig mörk seint í þessum leikjum og það var smá skjálfti en sem betur fer kláruðum við þetta,\" sagði Brynjar.

ÍR mætir næst Víkingi Ó. þann 22. júlí en þeir eru þrátt fyrir sigurinn í dag enn í fallsæti.

Viðtalið við Brynjar má sjá hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.