Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 14. júlí 2020 22:38
Brynjar Ingi Erluson
Giroud um fagnið: Ég spila skrafl með Kante
Olivier Giroud skoraði og fagnaði með skrifa
Olivier Giroud skoraði og fagnaði með skrifa
Mynd: Getty Images
„Við þurftum að vera þolinmóðir og hreyfa boltann hratt gegn liði sem varðist aftarlega. Við sköpuðum mörg færi en það var mikilvægast að ná inn marki fyrir hálfleik," sagði Olivier Giroud, framherji Chelsea eftir 1-0 sigurinn á Norwich City í kvöld.

Chelsea er nú skrefi nær því að tryggja sæti í Meistaradeild Evrópu en liðið er með fjögurra stiga forystu á bæði Leicester og Manchester United.

Giroud fékk tækifærið í byrjunarliði Chelsea og nýtti það með að skora mark undir lok fyrri hálfleiks en hann stangaði þá fyrirgjöf Christian Pulisic í netið.

„Ég klúðraði nokkrum færum sem ég myndi vanalega ekki klúðra en ég hef kannski bara tapað smá sjálfstrausti. Þrá mín að skora var hins vegar svo mikil og því reyndi ég að halda einbeitingu. Þetta var frábær fyrirgjöf frá Christian og svo skoraði ég með skalla. Ég mun alltaf hafa trú og leggja hart að mér."

Giroud fagnaði markinu með því að þykjast skrifa eitthvað en hann segir að það hafi ekki verið nein djúp hugsun á bakvið það.

„Ah. Ég spila skrafl með N'Golo Kanté! Það var ekki merkilegra en það," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner