Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. júlí 2021 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Nice borgar 15 milljónir fyrir liðsfélaga Alberts
Mynd: Getty Images
Franska félagið OGC Nice er búið að kaupa kantmanninn Calvin Stengs sem hefur verið mikilvægur hlekkur í liði AZ Alkmaar undanfarin ár.

Stengs er 22 ára gamall og er meðal annars í byrjunarliðsbaráttu við Albert Guðmundsson hjá AZ.

Nice borgar 15 milljónir evra fyrir Hollendinginn sem á sjö leiki að baki fyrir A-landsliðið en komst ekki í lokahópinn fyrir Evrópumótið.

Stengs hefur gert 24 mörk í 113 leikjum með AZ og reynir nú fyrir sér í franska boltanum. Albert gæti þá fengið meira pláss til að láta ljós sitt skína í hollensku toppbaráttunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner