Breytingar í kortunum hjá Portúgal - Felix fær nýtt hlutverk

A Bola telur að Joao Palhinha gæti fengið stærra hlutverk

Mynd: EPA

Rodrigo Mora er framtíðarleikmaður portúgalska landsliðsins

Portúgalski miðillinn A Bola veltir fyrir sér mögulegu byrjunarliði Portúgals undir stjórn Jorge Jesus sem tók við keflinu af Roberto Martínez á dögunum, en Cristiano Ronaldo gæti verið áfram í stóru hlutverki.
Martínez hætti með Portúgal eftir að liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum HM.
Jorge Jesus, sem vann með Ronaldo hjá Al Nassr, tók við starfinu og hefur sagt að framherjinn sé inni í sínum áætlunum.
Síðasta áratuginn hefur Jesus mikið notast við leikkerfin 4-4-2 og 4-2-3-1.
Hann ætlar að færa Joao Felix af vinstri vængnum og nota hann rétt fyrir aftan annað hvort Ronaldo eða Goncalo Ramos. Jesus notaði Felix þar hjá Al Nassr á síðustu leiktíð og hann blómstraði í þeirri stöðu.
Þá er talið að varnarsinnaði miðjumaðurinn Joao Palhinha gæti spilað stórt hlutverk. Jesus vill hafa líkamlega sterkan og öflugan leikmann á miðjunni. Síðustu ár hafa Joao Neves, Bruno Fernandes og Vitinha stjórnað miðsvæðinu, en Palhinha gefur Jesus aðra möguleika.
Það væri sérstakt að sjá Jesus taka einn af þessum þremur heimsklassa leikmönnum úr liðinu, en það þarf að minnsta kosti að bæta taktíska uppleggið. Portúgalska liðið á að gera mun betur en það gerði á heimsmeistaramótinu.
Annar leikmaður sem gæti komið inn í liðið er Rodrigo Mora hjá Porto. Hann er gríðarlega hæfileikaríkur leikmaður sem varð deildarmeistari á síðustu leiktíð.
Mora er 19 ára gamall og hentar best í því hlutverki sem Jesus ætlar að nota Felix í, en getur einnig spilað á miðsvæðinu. Hann lék 44 leiki með Porto á síðasta tímabili og kom að sjö mörkum.
Þrátt fyrir að Porto hafi unnið deildina var búist við meira frá Mora, sem er talinn ein helsta framtíðarstjarna Portúgala. Hann á enn eftir að spila sinn fyrsta A-landsleik.