Fotbolti.net
14.07.26 - 07:30
Sævar Þór Sveinsson

ETO Györ með meiri veltu en Víkingur

Víkingur vann fyrri leik liðanna.

Víkingur vann fyrri leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Utan

Víkingur er ríkjandi Íslandsmeistari og byrjar því í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu. Í fyrstu viðureign Víkinga mæta þeir ungversku meisturunum í ETO Györ. Fyrri leikur liðanna fór fram þann 7. júlí síðastliðinn í Fossvoginum og enduðu leikar 1-0 Víkingi í vil. Seinni leikur liðanna fer fram í dag.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 12. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Ef litið er á rekstrarreikninga þessara tveggja liða má sjá að hann er nokkuð stærri hjá ETO Györ. Árið 2025 voru tekjur ETO Györ tæplega 2.216 milljónir króna en tekjur Víkings voru 622 milljónir króna. Tekjur ETO Györ eru í raun nær tekjum KSÍ heldur en tekjum Víkings, þar sem tekjur KSÍ voru 2.349 milljónir króna á síðasta ári. Heilt yfir eru tekjur ETO Györ 256% meiri en tekjur Víkings.

Svipaður munur er á útgjöldum liðanna tveggja. Heildarútgjöld ETO Györ á síðasta ári voru 2.223 milljónir króna en útgjöld Víkings voru 723 milljónir króna. Útgjöld ETO Györ eru því 207% hærri. Það er hins vegar þannig að hlutfallslega setur ETO Györ meiri pening í launakostnað. Samkvæmt ársreikningi ETO Györ var launakostnaður félagsins 1.531 milljón króna á síðasta ári, en til samanburðar var launakostnaður Víkings töluvert lægri eða 379 milljónir króna. Ef litið er á launahlutfallið hjá liðunum þá var það 69% hjá ETO Györ en 53% hjá Víkingi.

UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.