12.07.26
UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana
SÆVAR ÞÓR SVEINSSON
Þessa dagana eru íslensku liðin okkar að etja kappi í undankeppni deildarkeppna UEFA. Það er allur gangur á því hvaða andstæðinga íslensku liðin dragast gegn, sum þeirra eru íslendingum þekkt en önnur eru okkur óþekkt. Til þess að átta sig á því hvort íslensku liðin eigi möguleika gegn sínum andstæðingum er hægt að líta á ýmsa þætti, einn þeirra eru ársreikningar liðanna. Í þessari grein verða ársreikningar Víkings, Vestra og Stjörnunnar bornir saman við ársreikninga mótherja þessara liða.






