Meiðsli hjá KA sem er ekki hætt á markaðnum - „Þeir verða komnir fyrir næsta leik"

KA ætlar að kynna inn tvo leikmenn mjög fljótlega.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóan Símun er meiddur á mjöðm.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rodri sleit krossband og KA ætlar að fá inn sexu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver Heiðars ristarbrotnaði gegn Víkingi fyrr í þessum mánuði.

KA ætlar sér að kynna Adam Ægi Pálsson fljótlega sem nýjan leikmann félagsins. Adam, sem er sóknarsinnaður leikmaður; kantmaður, kemur frá Val.
Hann verður ekki eini leikmaðurinn sem KA ætlar að fá í glugganum. Leitað er að sexu, varnarsinnuðum miðjumanni, þar sem Spánverjinn Rodri verður ekki meira með á tímabilinu eftir að hafa slitið krossband í vor.
Svo er möguleiki á því að einn leikmaður til viðbótar verði sóttur til félagsins.

TENGT EFNI
Adam verður leikmaður KA
„Við ætlum að taka tvo leikmenn inn að lágmarki, kannski þrjá. Við erum að lenda í smá meiðslum og svo viljum við aðeins stuða hópinn. Það eru tveir leikmenn sem eru dottnir út í langtímameiðsli og það er óvíst með frekari þátttöku hjá þeim í sumar, bæði Oliver (Heiðarsson) og Jóan (Símun Edmundsson) eru dottnir út. Það kom í ljós að Jóan þarf að fara í aðgerð á mjöðm, hann er ekki að ná sér góðum af þeim meiðslum og verður væntanlega ekkert meira með," segir Sævar Pétursson, sem er framkvæmdastjóri KA, í samtali við Fótbolta.net.
„Ásgeir (Sigurgeirsson) er byrjaður að hlaupa, hann er einn af þeim sem mögulega gæti náð úrslitakeppninni. Hann, Hrannar (Björn Steingrímsson) og Oliver gætu mögulega náð einhverju í úrslitakeppninni, en ekkert fyrir það. Það er þá bara ef allt gengur upp."
Annar af leikmönnunum sem KA ætlar að taka í glugganum er Adam Ægir Pálsson og styttist í að hann verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins. En hvaða stöðu eru KA-menn að horfa í annars?
„Við erum að leita að sexu, það þarf að fá inn mann í staðinn fyrir Rodri."
Ef sá þriðji bætist við, er óráðið hvaða stöðu sá leikmaður spilar?
„Já, glugginn er svo sem bara að fara opna og við aðeins að meta stöðuna. Við klárum þessa tvo (Adam og einn annan) núna á næstu 2-3 dögum og þeir verða komnir í hópinn fyrir leikinn á móti ÍBV. Svo höldum við því opnu hvað við gerum, ef okkur finnst þurfa einn í viðbót þá er það möguleiki. Vonandi fara einhverjir að snúa til baka úr meiðslum. Samuel (Kroon) hefur verið aðeins frá, vonandi fer hans staða að skýrast. Hann tognaði aftur á móti Breiðabliki, vonandi eru ekki nema þrjár vikur, en það þarf að vanda sig þar sem þetta var önnur tognunin," segir Sævar.