Sævar um Svein Margeir: Víkingar stýra ferðinni og við erum í samtali við þá

Hafði fyrir leikinn í gær skorað eitt mark í deildinni og eitt í bikarnum.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Hörður Ágústsson/Víkingur

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sveinn Margeir Hauksson minnti hressilega á sig á sunnudag þegar KA tók á móti ÍA í Bestu deildinni. ÍA komst í 0-2 í leiknum en Sveinn Margeir skoraði tvennu og jafnaði metin. Það var svo Hallgrímur Mar Steingrímsson sem skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
Sveinn Margeir er lánsmaður hjá frá Víkingi. Elías Már Ómarsson varð fyrir því óláni í síðustu viku að slíta krossband og einhverjar getgátur um að Víkingur gæti kallað Svein inn í hópinn núna í komandi félagaskiptaglugga.
Fótbolti.net ræddi við Sævar Pétursson semer framkvæmdastjóri KA.

TENGT EFNI
Meiðsli hjá KA sem er ekki hætt á markaðnum - „Þeir verða komnir fyrir næsta leik"
Eru einhver samskipti við Víkinga, býstu við því að þeir mögulega kalli hann til baka?
„Við erum í samskiptum við Víkinga og ég held það sé heiðarlegt að segja að þeir séu örlítið að bíða og sjá hvað gerist í Evrópukeppninni. Þeir stýra ferðinni og við erum í samtali við þá. En ég held að þeir taki enga ákvörðun um Svenna eða neinn af sínum leikmönnum fyrr en eftir að þeir vita stöðuna eftir þetta Meistaradeildareinvígi," segir Sævar.
Víkingur mætir Györ í Ungverjalandi í dag, leikurinn hófst núna klukkan 17:00, og leiðir Víkingur einvígið með einu marki eftir fyrri leikinn í Ungverjalandi. Ef Víkingur sigrar einvígið fer liðið í 2. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni og er orðið öruggt með sæti í umspili um sæti í Sambandsdeildinni.
Hefur verið ýjað að einhverju varðandi möguleg skipti Sveins Margeirs, að þeir kalli hann til baka ef þeir fara áfram?
„Nei, ekkert sem við höfum fengið. En maður hefur verið einn vetur í fótboltanum og ef þeir vinna einvígið þá eru þeir komnir í mjög skemmtilega stöðu í Evrópu og mjög líklegt að þeir fari inn í Sambandsdeildina. Þá finnst mér ekkert ólíklegt að þeir styrki hópinn eitthvað eða kalli einhvern leikmann til baka. En auðvitað eru það bara getgátur af minni hálfu. Kári (Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi) er betri í því að svara því en ég," segir Sævar.
Víkingur er með fleiri lánsmenn í efstu deild. Davíð Helgi Aronsson og Eiður Orri Ragnarsson eru hjá Keflavík og Atli Þór Jónasson er í Fram.