Fotbolti.net
14.07.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu markið: Digne gripinn í landhelgi og Spánn leiðir

Sjáðu markið: Digne gripinn í landhelgi og Spánn leiðir
Canon

Mynd: EPA

Evrópumeistararnir frá Spáni eru einu marki yfir í undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins sem er í gangi þessa stundina.
Mikel Oyarzabal, samherji Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad, skoraði af vítapunktinum eftir afar klaufalegt brot Lucas Digne innan vítateigs.

Digne braut á Lamine Yamal sem var á undan honum í boltann og skoraði Oyarzabal örugglega af vítapunktinum, þó Mike Maignan hafi valið rétt horn.

Þetta er þriðji undanúrslitaleikurinn þar sem þessar þjóðir etja kappi á síðustu tveimur árum. Spánn hafði betur á EM 2024 og í Þjóðadeildinni 2025.

Sjáðu markið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.