Fotbolti.net
14.07.26 - 20:26
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu markið: Porro tvöfaldaði forystuna

Sjáðu markið: Porro tvöfaldaði forystuna
Canon

Mynd: EPA

Spánverjar eru komnir í tveggja marka forystu í undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins gegn Frakklandi.
Hægri bakvörðurinn Pedro Porro tvöfaldaði forystu Evrópumeistaranna eftir frábært þríhyrningsspil við Dani Olmo þar sem franska vörnin gjörsamlega steinsofnaði á verðinum áður en Porro skoraði af stuttu færi.

Staðan er því 2-0 þegar tæpur hálftími er eftir af venjulegum leiktíma.

Þetta er þriðji undanúrslitaleikurinn þar sem Spánverjar og Frakkar eigast við á síðustu tveimur árum, en í fyrra vann Spánn 5-4 eftir ótrúlega fjörugan og kaflaskiptan leik. Það getur því allt gerst á síðasta hálftímanum í kvöld.

Sjáðu markið

Sjáðu markið: Digne gripinn í landhelgi og Spánn leiðir
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Digne gripinn í landhelgi og Spánn leiðir

Sjáðu markið: Porro tvöfaldaði forystuna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.