Geronimo Rulli og Juan Foyth eru einu Argentínumennirnir í Villarreal en er sá þriðji búinn að bætast við: Giovani Lo Celso.
Lo Celso kemur á lánssamningi frá Tottenham sem gildir í eitt tímabil og það fylgir enginn kaupmöguleiki með.
Lo Celso er öflugur miðjumaður sem gerði góða hluti að láni hjá Villarreal í vor. Hann spilaði 84 keppnisleiki á tveimur og hálfu ári hjá Tottenham en er ekki sú tegund af leikmanni sem Antonio Conte telur sig þurfa.
Argentínski landsliðsmaðurinn á þrjú ár eftir af samningi sínum við Tottenham og er félagið reiðubúið til að selja hann fyrir rétta upphæð.
Rulli og Foyth tilkynntu komu samlanda sins með skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér fyrir neðan.
He’s coming.
— Villarreal CF English (@VillarrealCFen) August 14, 2022
📞 @gerorulli & @JuanMFoyth 🔝 pic.twitter.com/LsH8PJzu72