14.08.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bandarískur varnarmaður til Akureyrar (Staðfest)


Mynd: Texas Longhorns


Mynd: Texas Longhorns

Þór/KA hefur fengið nýjan varnarmann fyrir endasprettinn í Bestu deild kvenna.
Hún heitir Lauren Adrienne Lapomarda og er 24 ára. Hún kemur til Akureyrar frá Dallas Trinity úr USL deildinni.
Hún heitir Lauren Adrienne Lapomarda og er 24 ára. Hún kemur til Akureyrar frá Dallas Trinity úr USL deildinni.
Hún spilaði með Texas háskólanum frá 2020-2024. Hún kom við sögu í 102 leikjum og er leikjahæst í sögu skólans. Þaðan fór hún til Parma og kom við sögu í einum leik áður en hún samdi við Dallas.
Þór/KA er í 8.sæti deildarinnar með 15 stig eftir 14 umferðir. Liðið spilar gegn Víkingi í kvöld í fallbaráttuslag. Lapomarda spilar ekki í kvöld en fær leikheimild fyrir leik gegn Val 21. ágúst.
Þór/KA er í 8.sæti deildarinnar með 15 stig eftir 14 umferðir. Liðið spilar gegn Víkingi í kvöld í fallbaráttuslag. Lapomarda spilar ekki í kvöld en fær leikheimild fyrir leik gegn Val 21. ágúst.
