Fotbolti.net
14.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Dalic kominn með nýtt starf (Staðfest)

Dalic kominn með nýtt starf (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Króatíski þjálfarinn Zlatko Dalic er tekinn við landsliði Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Dalic lét af störfum hjá króatíska landsliðinu eftir að liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í sumar.

Hann náði frábærum árangri með Króatíu og stýrði liðinu meðal annars í úrslit HM árið 2018 og undanúrslit fjórum árum síðar.

Dalic er nú kominn aftur til Sameinuðu arabísku furstadæmanna og hefur skrifað undir fjögurra ára samning sem gildir fram yfir næsta heimsmeistaramót.

Hann stýrði Al Ain frá 2014 til 2017 og vann á þeim tíma deildina, Forsetabikarinn og Ofurbikarinn. Þá kom hann liðinu einnig í úrslit Meistaradeildar Asíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.