14.08.26 - 20:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nökkvi frábær gegn gömlu félögunum

Mynd: Sparta Rotterdam

Mynd: Sparta Rotterdam
Nökkvi Þeyr Þórisson átti frábæran leik þegar Sparta Rotterdam vann 3-1 sigur á Telstar í 2. umferð hollensku deildarinnar.
Nökkvi lagði upp fyrsta markið og skoraði annað snemma í seinni hálfleik. Hann fékk boltann inn á teignum og skoraði með viðstöðulausu skoti í fjærhornið.

Nökkvi var á láni hjá Telstar seinni hluta síðasta tímabils og hjálpaði liðinu að halda sér uppi. Bæði lið eru með þrjú stig eftir tvær umferðir.
Helgi Fróði Ingason spilaði rúman klukkutíma í 2-1 tapi Helmond gegn Roda í næst efstu deild í Hollandi. Helmond er með eitt stig eftir tvær umferðir.
Sigurður Bjartur Hallsson var í byrjunarliði AD Merida sem vann 2-1 sigur á Alcorcon í æfingaleik. Merida spilar í C-deildinni á Spáni. Deildin hefst þann 29. ágúst.