14.08.26 - 08:00
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Tíu mörk fyrir 17 ára afmælið - hverjir hafa náð því?

Mattías Kjeld á fullri ferð með Gróttu í sumar. Hann er kominn með 10 mörk í 1. deildinni, 16 ára gamall.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mattías Kjeld hefur vakið athygli með liði Gróttu í 1. deild karla á þessu keppnistímabili en hann kom til félagsins frá Val þar sem hann spilaði sinn fyrsta leik í Bestu deildinni árið 2025, þá aðeins 15 ára gamall.
Hann færði sig yfir til Gróttu til þess að fá að spila meira en hann hefði gert á Hlíðarenda og það hefur svo sannarlega skilað sér. Mattías er markahæsti leikmaður liðsins í 1. deildinni í ár og skoraði sitt 10. mark í jafnteflisleik gegn Þrótti R., 1-1, á dögunum. Það var hans sjöunda mark í síðustu átta leikjunum.
Eftir því sem næst verður komist er Mattías fyrsti leikmaðurinn sem nær að skora 10 mörk í tveimur efstu deildum Íslandsmóts karla áður en hann verður 17 ára en hann nær bílprófsaldrinum 21. september.
Eiður Smári Guðjohnsen var kominn vel af stað þegar hann skoraði sjö mörk fyrir Val í efstu deild, 15 ára gamall, árið 1994, en þá fór hann til Hollands og skoraði sín næstu deildamörk fyrir aðallið PSV Eindhoven í úrvalsdeildinni þar í landi þegar hann var orðinn sautján ára.
Fimm leikmenn til viðbótar, sem hafa síðar á ferlinum spilað í efstu deild, hafa náð að skora 10 mörk eða meira í deildakeppninni fyrir 17 ára afmælisdaginn og þá veit ég um tvo aðra sem náðu þessu en léku allan sinn feril í neðri deildunum. Þeir eru sennilega fleiri og þeir sem geta bent á þá eru beðnir um að hafa samband við greinarhöfund.
En við skulum skoða betur þessa sjö leikmenn, til viðbótar við Mattías, sem skoruðu 10 deildamörk eða fleiri áður en þeir urðu 17 ára gamlir: