Fotbolti.net
14.09.04 - 10:09

Stern John til Coventry (Staðfest)

Peter Reid nældi í John

Peter Reid nældi í John

Canon
Já líklega munum við ekki fá margar fréttir sem eru staðfest félagaskipti í vetur þegar félagaskiptaglugginn er lokaður en það gerist þó núna vegna þess að Stern John er farinn frá Birmingham og er kominn til Coventry.
John vildi ólmur fara frá St. Andrews í sumar en samningur hans við félagið var runninn út. Hann laðaði að nokkur úrvalsdeildarfélög sem síðan hættu við að fá hann. Í stað þess hófu Leeds, Nottingham Forest og Coventry baráttu um kappann.

Eftir að Leeds hættu við virtist líkegast að John færi aftur til Nottingham Forest en hann ákvað á endanum að fara til Coventry. Hann skrifaði undir þriggja ára samning hjá Peter Reid og félöga og fer beint í liðið sem mætir Gillingham á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.