14.09.04 - 14:53
Magnús Már Einarsson
Fadiga til Bolton (Staðfest)




Khalilou Fadiga hefur gert samning við Bolton um að leika með liðinu út þetta tímabil með möguleika á framlengingu næsta vor. Fadiga sem að er 29 ára hefur verið án félags síðan að hann fór frá Inter í sumar en þessi fyrrum leikmaður Auxerre virtist á tíma vera búinn að missa af samning hjá Bolton. Hann náði hinsvegar að heilla Sam Allardyce stjóra Bolton á æfingum en Senegalinn hefur æft með liðinu seinustu tvær vikurnar.
"Það verður gott að hafa hann í framlínunni þegar að hann kemst í form en það ætti að verða eftir um fjórar til sex vikur" Sagði Sam Allardyce í dag.
