Fotbolti.net
14.09.19 - 18:07
Arnar Laufdal Arnarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Jóhann Árni: Pæli ekkert í því sem þessi gæjar eru að segja

Auglýsing
Jóhann Árni verið frábær í sumar fyrir Fjölni

Jóhann Árni verið frábær í sumar fyrir Fjölni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Árni var brattur eftir leik þegar Fjölnir tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili eftir 1-1 jafntefli gegn Leikni í dag. Jóhann er fæddur árið 2001 og þykir gríðarlegt efni og hefur verið einn besti leikmaður Inkasso deildarinnar í allt sumar og fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum.

" Ég í rauninni pæli ekki neitt í því, ég mæti bara á völlinn og reyni að gera mitt besta, ég svo sem pæli ekki neitt í því sem þessir gæjar eru að segja" Sagði Jóhann varðandi umfjöllun fjölmiðla í sumar.

"Fjölnir er staðan núna, það gæti vel verið að eitthvað gerist en það er Fjölnir er eins og staðan er núna og ég er mjög spenntur fyrir því á næsta tímabili" Hafði Jóhann að segja þegar spurt var út í framtíðina með Fjölni eða jafnvel atvinnumennsku.
Jóhann hefur verið stór hluti af ungu strákunum sem hafa verið að spila í sumar, það má líka nefna Orra Þórhallsson, Ingibert Kort, Vilhjálm Yngva og Kristófer Óskar sem hafa spilað mikið af mínútum í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.