14.09.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kiddi hættur eftir fjögur ár á Ásvöllum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Aron Hjartarson er hættur sem þjálfari KÁ eftir fjögur frábær ár með félaginu, en liðið féll úr 3. deild á dögunum.
Kiddi Hjartar gerði magnaða hluti við stjórnvölinn hjá KÁ og kom liðinu upp í 3. deild í fyrra, en tókst ekki að forðast fall á fyrsta ári í nýrri deild. Liðið endaði þó með 22 stig úr 22 umferðum, þremur stigum frá öruggu sæti.
„Það er erfitt að setja í orð hversu mikið Kiddi hefur gefið þessu félagi á þessum árum. Árangurinn, sigrarnir og allt sem hefur gerst inni á vellinum segir aðeins hluta af sögunni," segir meðal annars í tilkynningu frá KÁ.
„Það sem Kiddi skilur eftir sig hjá KÁ er í raun ómetanlegt.
Hann hefur byggt upp þann kjarna og þá liðsheild sem KÁ stendur fyrir í dag. Hóp þar sem menn mæta ekki bara til að spila fótbolta heldur til að vera hluti af einhverju stærra. Vinátta, samheldni, metnaður og viljinn til að gera allt fyrir félagið hefur einkennt hópinn, og þar hefur Kiddi átt gríðarlega stóran þátt.
„Á þessum fjórum tímabilum hefur hann farið með félaginu í gegnum bæði hæstu hæðir og erfiðustu augnablikin. Við höfum fagnað saman, farið upp um deild, tekist á við mótlæti og nú síðast fallið saman. En sama hvernig gekk hefur Kiddi alltaf staðið með félaginu og strákunum. Fyrir það verður honum seint fullþakkað.
Það var því engin tilviljun að Kiddi varð fyrsti einstaklingurinn í sögu félagsins til að hljóta gullmerki KÁ. Það var viðurkenning fyrir framlag sem verður ekki eingöngu mælt í úrslitum eða stigum, heldur í því sem hann hefur byggt upp og skilið eftir sig hjá félaginu.
Kiddi skilur við KÁ sem stærra og sterkara félag en þegar hann tók við og sá kjarni sem hann hefur hjálpað til við að skapa mun lifa áfram.
Fyrir hönd allra hjá KÁ viljum við segja einfaldlega: Takk, Kiddi. Takk fyrir óteljandi klukkutíma, baráttuna, metnaðinn, tryggðina og allt sem þú hefur gert fyrir strákana og félagið okkar. Þú verður alltaf hluti af sögu KÁ og alltaf einn af okkur. Takk fyrir allt, Kiddi."