Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. október 2021 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aguero: Messi var í áfalli
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero leikmaður Barcelona sagði í viðtali að hann hafi farið til félagsins til að spila með landa sínum Lionel Messi.

Barcelona er hinsvegar í miklum fjárhagslegum vandræðum og Messi yfirgaf félagið í sumar.

Aguero sagði frá upplifun Messi þegar honum var ljóst að hann væri að fara frá félaginu.

„Þetta var áfall fyrir hann. Honum leið hræðilega. Ég trúði þessu ekki, ég fór heim til hans og eins og ég er þá reyndi ég að láta hann gleyma því sem hafði gerst. Ég sá að hann átti erfitt með að einbeita sér en ég var að reyna að láta hann hugsa um eitthvað annað," sagði Aguero.

Eins og fyrr segir langaði Aguero að spila með landa sínum en þrátt fyrir að Messi sé farinn er hann staðráðinn í að leggja sig fram fyrir félagið.

„Þegar þeir hringdu hugsaði ég 'mér er alveg sama hvað þeir borga mér. Ég mun vera ánægður að hjálpa þeim að ná eins góðum árangri og mögulegt er."
Athugasemdir
banner
banner