Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 14. október 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Drake vildi hitta Davies eftir þennan magnaða sprett
Alphonso Davies er einn fljótasti leikmaður heims og hér fagnar hann marki sínu
Alphonso Davies er einn fljótasti leikmaður heims og hér fagnar hann marki sínu
Mynd: Getty Images
Kanadíski leikmaðurinn Alphonso Davies reif þakið af húsinu í Kanada er hann kom þjóðinni 2-1 yfir gegn Panama en markið var afar sérstakt.

Kanada var að keyra fram í skyndisókn og kom slök sending út hægri vænginn. Það virtist ekki vera möguleiki fyrir Davies að ná til knattarins enda var hann langt frá boltanum og varnarmaður Panama ekki langt frá.

Davies tók sprettinn og náði að halda honum inná með skemmtilegum tilburðum áður en hann keyrði í átt að marki og skoraði við mikinn fögnuð heimamanna.



Kanada vann leikinn 4-1 í undankeppni HM og eftir leikinn sendi kanadíski rapparinn skilaboð á Davies og óskaði eftir því að hitta leikmanninn, svo hrifinn var hann af markinu.

Sprettinn og markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Davies


Athugasemdir
banner
banner
banner