14.10.26 - 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Eftirminnilegt kvöld hjá Manzambi

Afmælisstrákurinn Manzambi átti sturlað kvöld

Mynd: EPA

Svisslendingurinn Johan Manzambi átti stórleik í 6-0 sigri Aston Villa á Fenerbahce í Meistaradeildinni í kvöld og er óhætt að segja að þetta sé kvöld sem hann mun seint gleyma.

TENGT EFNI
Jackson hrósaði liðsfélögum sínum í hástert
Manzambi fagnaði 21 árs afmæli sínu í dag og gat varla valið sér betri leið til að halda upp á daginn, en hann lék sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni og opnaði markareikninginn í keppninni eftir aðeins tólf mínútur.
Draumabyrjun hjá Manzambi sem fiskaði síðan vítaspyrnu síðar í leiknum.
„Þetta var frábær dagur. Við skoruðum sex mörk og héldum hreinu, sem er frábært fyrir okkur og ekki síður stuðningsmennina.“
„Ég er ótrúlega ánægður. Þetta var fyrsti leikurinn minn í Meistaradeildinni og ég skoraði mitt fyrsta mark, allt á afmælisdaginn minn. Fjölskyldan mín er hérna líka þannig að þetta gæti varla verið betra.“
„Þetta er frábært lið með frábæra stuðningsmenn og ég gæti ekki verið ánægðari með að vera hér,“ sagði Manzambi að lokum.