14.10.26 - 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe tók met af Messi

Kylian Mbappe

Mynd: EPA

Messi missti eitt af metum sínum í kvöld

Mynd: EPA

Kylian Mbappe

Mynd: EPA
Franski landsliðsfyrirliðinn Kylian Mbappe varð í kvöld yngsti leikmaðurinn í sögu Meistaradeildarinnar til að ná hundrað leikjum í keppninni.
Mbappe fagnaði sínum hundraðasta leik í Meistaradeildinni með því að skora í mögnuðum 4-3 endurkomusigri Real Madrid á Roma í kvöld.
Frakkinn, sem er 27 ára gamall, sló um leið met Lionel Messi sem yngsti leikmaðurinn til að ná hundrað leikjum í keppninni.
Messi var 28 ára og 84 daga gamall þegar hann náði þessum áfanga gegn Roma árið 2015, en Mbappe bætti metið, aðeins 27 ára og 198 daga gamall.
Mbappe hefur nú skorað 72 mörk í Meistaradeildinni og á enn nokkuð í land með að ná Messi, en 57 mörkum munar á þeim. Það verður þó fróðlegt að sjá hvort Frakkanum takist að ná Argentínumanninum á næstu árum.
Áður en Messi sló metið var Raul yngsti leikmaðurinn til að ná hundrað leikjum í keppninni. Hann var 28 ára og 239 daga gamall þegar hann náði þeim áfanga gegn Arsenal árið 2006.

???? RECORD: Kylian Mbappé became the YOUNGEST player ever to reach 100 Champions League appearances.
— Madrid Zone (@theMadridZone) October 14, 2026
He is 27 years and 298 days old, beating Lionel Messi, who was 28 years and 84 days old when he reached 100 appearances.
?? https://t.co/diT2z0ebWK