Fotbolti.net
14.12.03 - 00:00

Boumsong fer til Rangers (Staðfest)

Boumsong er fagnað af félögum sínum í landsliðinu

Boumsong er fagnað af félögum sínum í landsliðinu

Canon
Alex McLeish stjóri Rangers hefur staðfest að Jean-Alain Boumsong hafi skrifað undir loforð um að skrifa undir samning við liðið. Boumsong er einn af efnilegustu varnarmönnum Evrópu um þessar mundir en hann er kominn í Franska landsliðið. Boumsong sem einmitt varð 24 ára í dag fer frá liði sínu Auxerre í frjálsri sölu næsta sumar þegar samningur hans rennur út.
Lengi var talið að Liverpool myndi hreppa kappann en Boumsong sagði sjálfur að Houllier stjóri Liverpool og þau lið sem reyndu að ná í hann hefu sagt sér að bíða og því ætlaði hann til Rangers en lesa má meira um það í frétt okkar hér. McLeish var vitalega í skýjunum yfir þessum tíðindum en hann á eftir að styrkja lið Rangers mikið.

Reyndar tapaði Rangers í dag 2-0 fyrir Dunfermline Athletic og eru þeir því 8 stigum á eftir Celtic í baráttunni um Skoska Meistaratitilinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.