15.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Paolo Rink til Vittese (Staðfest)




Paolo Rink fyrrum leikmaður Bayer Leverkusen hefur gengið til liðs við hollenska liðið Vitesse. Rink sem er þrítugur framherji var á mála hjá liðið á Kýpur, Olympiakos Nikosa en eftir að hafa ekki fengið borguð laun í fimm mánaði úrskurðaði FIFA að hann mætti fara frá félaginu. Þessi fyrrum þýski landsliðsmaður sem að fæddist reyndar í Brasilíu hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Vitesse.
