Fotbolti.net
15.01.20 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Birmingham spilar útileik á heimavelli

Birmingham fagnar marki.

Birmingham fagnar marki.

Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham mætir Coventry í fjórðu umferð enska bikarsins um þarnæstu helgi en þetta varð ljóst eftir að síðarnefnda liðið vann Bristol Rovers 3-0 í endurteknum leik í þriðju umferðinni í gær.
Coventry á heimaleik gegn Birmingham en leikurinn fer þrátt fyrir það fram á St Andrew's heimavelli Birmingham.

Coventry spilar heimaleiki sína á St Andrew's í vetur þar sem félagið náði ekki að semja um vallarleigu á Ricoh Arena leikvanginum í Coventry.

Þetta hefur haft áhrif á mætingu hjá stuðningsmönnum Coventry í vetur en hálftími er á milli leikvallanna.

Leikur Coventry og Birmingham fer fram laugardaginn 25. janúar næsktomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.