Newcastle United hefur áhuga á varnarmanninum Diego Carlos sem spilar með Sevilla á Spáni.
Marca greinir frá því að Newcastle sé búið að bjóða 20 milljónir í leikmanninn sem Sevilla hafði engan áhuga á að taka.
Samkvæmt sömu heimildum þarf enska liðið að tvöfalda þessa upphæð til að eiga möguleika á samkomulagi.
Carlos er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Sevilla sem hefur ekki mikinn áhuga á að losa hann og hvað þá í janúarglugganum.
Carlos er 28 ára gamall miðvörður sem kom til Sevilla frá Nantes í Frakklandi árið 2019.
Athugasemdir