Fotbolti.net
15.01.23 - 13:57
Aksentije Milisic

Sjáðu myndirnar: Mudryk mættur á Stamford Bridge

Sjáðu myndirnar: Mudryk mættur á Stamford Bridge
Canon

Mynd: Getty Images

Mykhaylo Mudryk er búinn að standast læknisskoðun hjá Chelsea og er hann mættur á Stamford Bridge til að fylgjast með leik Chelsea og Crystal Palace.

Allt stefndi í það að leikmaðurinn færi til Arsenal en svo mætti Chelsea á síðustu stundu og fékk leikmanninn í sínar raðir.

Hann mun fylgjast með sínum nýju félögum í Lundúnarslag í dag úr stúkunni en Mudryk hefur vakið mikla athygli með frammistöðu sinni í liði Shakhtar Donetsk á þessari leiktíð.

Þá má einnig sjá mynd af honum þar sem hann var mættur í Chelsea treyjuna.

Hér fyrir neðan má sjá kappann í góðum gír en á einni myndinni heldur hann á fána Úkraínu.









Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.