Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 12:17
Elvar Geir Magnússon
„Arnar Freyr er númer eitt í dag“ - Samkeppni um markvarðarstöðuna hjá KR
Arnar í leiknum í gær.
Arnar í leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það er hörð samkeppni um stöðuna milli stanganna hjá KR en Arnar Freyr Ólafsson varði mark liðsins gegn Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikarsins í gær.

Halldór Snær Georgsson var aðalmarkvörður KR í fyrra en Arnar lék þó tvo leiki í Bestu deildinn.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður að því eftir 4-0 sigur KR í gær hvort Arnar yrði númer eitt í sumar?

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  4 KR

„Ég myndi segja að Arnar Freyr sé númer eitt í dag, svo bara getur það breyst. Dóri er búinn að vera mjög flottur á æfingum en Arnar er búinn að vera virkilega öflugur í þessu leikjum og þarna ertu með samkeppni á milli tveggja góðra markmanna og það á enginn neitt í fótbolta, hvort sem það er markmannastaða eða center staða eða einhver önnur staða og menn þurfa bara á hverjum degi að vinna sér inn réttindi til þess að spila næsta leik og þannig er það bara," sagði Óskar.

Þú ert þá ekki búinn að ákveða þig fyrir fyrsta leik í bestu?

„Nei, ég er ekki búinn að gera það, ég veit ekki hvernig byrjunarliðið verður á móti Keflavík 12. apríl en Arnar spilaði mjög vel í dag og þá er hann kannski með eilítið forskot en ég held að það sé frábært, ýta hvort öðrum, Dóri er búin að vera flottur í þeim leikjunum sem hann hefur spilað og það er raunverulega lúxusvandmál að vera með tvo góða markmenn þar sem erfitt er að velja á milli."
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Athugasemdir
banner
banner