15.04.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Þorbjörn Atli í Fylki (STAÐFEST)

Þorbjörn Atli Sveinsson sem leikið hefur með Fram undanfarin ár skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Fylki. Hann stundar nú nám í Danmörku og æfir með því með Vejle þar til hann kemur til Íslands. Hann kemur hingað næstkomandi fimmtudag og leikur með Fylki gegn Þór Akureyri. Hann kemur svo endanlega 5. maí og hefur æfingar á fullu með Fylki.
Þorbjörn hefur átt við erfið meiðsli að stríða undanfarin ár og ekki getað beitt sér sem skyldi. Hann fór með Fram í æfingabúðir á Spáni en þar var ljóst að hann væri ekki inn í myndinni fyrir komandi tímabil og honum leyft að fara annað.
Þorbjörn leysir stöðu Hauks Inga Guðnasonar sem meiddist illa á æfingamóti á Spáni nú nýlega og leikur ekkert með Fylki í sumar vegna þessa. Hann var ekki samningsbundinn Fram og því þarf Fylkir aðeins að greiða félagsskiptagjald fyrir hann.