Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   lau 15. maí 2021 17:23
Bogi Sigurbjörnsson
Óskar Smári: Það fór um okkur þjálfarana
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Frammistaða liðsins var hrikalega góð í dag, við spiluðum frábæran fótbolta í 75 mínútur," sagði Óskar Smári Haraldsson annar þjálfara Tindastóls eftir 2 - 1 sigur liðsins á ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna í dag, fyrsti sigur nýliðanna í Pepsi Max-deildinni.

Lestu um leikinn: Tindastóll 2 -  1 ÍBV

„Það fór samt um okkur þjálfarana í lokin því ÍBV er með gott lið og þær eru með framherja sem skora mörk. Okkur leið ekkert vel þegar þær settu pressu á okkur en við náðum að klára og halda. Það var mikilvægt að sigla þessum þremur stigum heim."

Sjá mátti á liði Tindastóls að framfarir væru á spili liðsins. „Þegar við töluðum saman síðast náðum við stigi á móti Þrótti eftir að hafa gert vel varnarlega en ekki nægilega vel með boltann. Við fórum út á æfingasvæði og æfðum það að vera með boltann. Við erum góðar án boltans en hvað gerum við með boltann. Í dag var sú frammistaða töluvert betri."

Nánar er rætt við Óskar Smára í viðtalinu að ofan. Hann hrósar þar Fylki fyrir að standa með þeim í að fresta leik liðanna sem átti að fara fram fyrr í vikunni auk þess að fjalla um ÍBV liðið og komandi leik gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Slapp
banner
banner
banner