15.06.04 - 13:24
Hafliði Breiðfjörð
Mpenza í Anderlecht (Staðfest)

Mpenza í baráttu við leikmann Tyrkja.


Mpenza í baráttu við leikmann Tyrkja.

Belginn Mbo Mpenza skrifði í dag undir samning við Anderlecht. Leikmaðurinn sem er 27 ára gamall gengur til liðsins frá Excelsior Mouscron en hann lék einmitt með þeim á Laugardalsvellinum gegn Fylki um árið. Hann hefur áður verið á samningi hjá Standard Liege, Sporting í Portúgal og Galatasaray í Tyrklandi. Hann er bróðir Emile Mpenza sem gekk í raðir Hamburg frá Standard Liege í síðasta mánuði.
