Fotbolti.net
15.06.04 - 15:10
Magnús Már Einarsson

Hallur bætir enn metið, farinn til Víkings (Staðfest)

Hallur bætir enn metið, farinn til Víkings (Staðfest)
Canon
Hallur Kristján Ásgeirsson Íslandsmethafi í félagaskiptum er að bæta met sitt ennþá frekar því að hann er á leið til Víkings Ólafsvík frá Fjölni. Hallur sem að er sóknarmaður er þarna að hafa sín átjándu félagaskipti frá árinu 1996 og er hann búinn að skipta tvisvar sinnum oftar en félag heldur en Vilberg Marinó Jónasson sem að er á eftir Hall í þessari óvenjulegu "keppni".
Hallur er með brjóstklos í baki og sagði í samtali við fréttaritara Fótbolta.net að það væri of strangt, erfitt og mikil harka hjá Fjölni til að hann gæti spilað með liðinu svona á sig kominn í sumar og því hefur hann ákveðið að skipta yfir í Víking þó ekki nema til að reyna að spila einhverja leiki en kappinn segist lítið geta æft.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.