15.06.04 - 21:49
Magnús Már Einarsson
Leo Franco til Atletico Madrid (Staðfest)

Atletico Madrid hefur fengið argentíska markvörðinn Leo Franco frá Mallorca. Leo Franco sem að er 27 ára hóf ferilinn með CA Independiente í Argentínu en fór til spænska annarardeildarliðsins Mérida árið 1997 og ári síðar gekk hann til liðs við Mallorca.
Leo Franco mun berjast við Sergio Aragoneses um sæti í byrjunarliði Atletico Madrid en félagið lét þá German Burgos og Juanma fara í síðasta mánuði.
Franco var að vonum glaður eftir að hafa skrifað undir fimm ára samning við Atletico og sagði að þetta væri draumurinn, hann hefði alltaf langað að spila með félaginu. Þá bætti hann við að félagið yrði að komast úr Intertoto keppninni og í Evrópukeppni Félagsliða og taka Villareal sér til fyrirmyndar en þeir komust í gegn um Intertoto í fyrra og í Evrópukeppni Félagsliða.