Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. júní 2021 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grealish einn í ræktinni í dag - Maguire æfði með hópnum
Mynd: EPA
Jack Grealish æfði ekki með enska landsliðshópnum í dag. Hann er tæpur vegna meiðsla.

Hann var eini leikmaðurinn sem æfði ekki með því Harry Maguire tók þátt í æfingunni.

Aaron Ramsdale var ekki mættur inn í hópinn fyrir Dean Henderson sem verður ekki meira með á EM. Ramsdale var kallaður inn í hópinn í morgun og hittir hann hópinn seinna í dag.

Grealish æfði einn inn í ræktarsal á meðan aðrir voru úti á velli. Hópurinn er í undirbúningi fyrir leik gegn Skotlandi á föstudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner