Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mið 15. júní 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Newcastle reynir að ná samkomulagi við Lille
Sven Botman í leik með Lille.
Sven Botman í leik með Lille.
Mynd: Getty Images
Newcastle United er í viðræðum við Lille um hollenska varnarmanninn Sven Botman en hefur enn ekki náð samkomulagi um kaupverðið.

Talið er að Newcastle hafi boðið um 30 milljónir punda fyrir þennan 22 ára gamla hollenska miðvörð sem hefur einnig verið orðaður við Ítalíumeistara AC Milan.

Newcastle reyndi að fá hann í janúar en Botman gaf það út að hann vildi klára tímabilið með Lille áður en hann myndi skoða það að færa sig um set.

Newcastle er einnig að vonast til þess að fá ungan franskan sóknarmann, Hugo Ekitike, frá Stade de Reim. Félagið hefur þegar keypt bakvörðinn Matt Targett frá Aston Villa á 15 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner