Fotbolti.net
15.06.26 - 00:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Ingibjörg Lúcía spáir í leiki dagsins á HM

Ingibjörg Lúcía í leik með Stjörnunni í sumar.

Ingibjörg Lúcía í leik með Stjörnunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HM veislan heldur áfram en eftir klukkutíma og 45 mínútur mæta Svíar til leiks.

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, spáir í leikina sem eru framundan næsta sólarhringinn. Ingibjörg Lúcía hefur leikið vel með Stjörnunni í sumar en hún átti stórleik gegn Breiðabliki um helgina.
Túnis 1 - 2 Svíþjóð (02:00 í nótt)
Við fáum mörk frá báðum liðum en Svíarnir landa þessu að lokum, á rætur að rekja til Svíþjóðar þannig hef trú á mínum mönnum.

Spánn 4 - 0 Grænhöfðaeyjar (16:00)
Það er mikilvægt fyrir Spánverja að að byrja mótið vel, gæðin taka yfir og þeir klára þennan leik - ég fór líka einu sinni til spánar.

Belgía 1 - 2 Egyptaland (19:00)
Þetta verða óvænt úrslit fyrir sumum, en það er það sem er svo skemmtilegt í þessu.

Sádi-Arabía 0 - 2 Úrúgvæ (22:00)
Þetta verður jafn leikur til að byrja með en Úrúgvæ landar þessu svo þægilega. Bróðir minn stefnir á að fara einn daginn þangað, ætli sú ferð verði ekki betri ef þeir taka þennan leik?
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Byrja Svíar á sigri?

Byrja Svíar á sigri?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.