Fotbolti.net
15.06.26 - 16:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sölvi fagnar fótboltanum sem KR spilar - „Gott fyrir íslensku deildina"

'Það er það sem ég er ánægðastur með og við verðum að halda því áfram'

'Það er það sem ég er ánægðastur með og við verðum að halda því áfram'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það að fara í toppslag gegn KR leggst mjög vel í mig, ég er spenntur eins og fyrir alla aðra leiki. Það er frábært að þetta séu liðin sem eru í sæti í eitt og tvö núna að keppast, maður finnur að það sé mikil spenna fyrir leiknum. Við erum samt ennþá í júní, við skulum aðeins róa okkur, en vissulega spennandi og hörkuleikur framundan. Vonandi verður hann skemmtilegur," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um leikinn gegn KR sem fer fram á Víkingsvelli annað kvöld.

Flautað verður til leiks 19:15 og er þegar orðið uppselt á leikinn.
Kemur í ljós í dag hvort lykilmaður Víkings verði með
TENGT EFNI

Kemur í ljós í dag hvort lykilmaður Víkings verði með

Í síðasta deildarleik liðanna vann Víkingur 7-0 útisigur á KR. Býst Sölvi við allt öðruvísi leik?

„Það gæti farið hvernig sem er, ég veit að þetta verður orkumikill leikur, hart slegist inn á vellinum, mikið um einvígi og einstaklingsgæði. Leikurinn getur farið í margar áttir."

Eins og áður var sagt varð fljótt uppselt á leikinn, hvernig líður þér með að fara inn í leik þar sem mjög mörg augu verða á leiknum?

„Við erum vanir því að spila þannig leiki, þetta er bara fótboltaleikur í deildinni þar sem eru þrjú stig undir, eins leiðinlegt og það hljómar," segir Sölvi og hlær. „Við þurfum að horfa framhjá öllu utanaðkomandi 'hype-i', hugsa um okkur sjálfa og vera klárir. Við erum með ákveðna mynd af því hvernig við viljum spila og á hvaða orkustigi. Það gildir eins með alla andstæðinga."

„En vissulega eiga KR-ingar hrós skilið fyrir sitt gengi í sumar, þeir hafa verið mjög flottir, en við spáum fyrst og fremst í okkur."


Það er lykilatriðið gegn KR
KR er þekkt fyrir sóknarleikinn sinn og stífa pressu. Er eitthvað sem þarf að taka frá þeim sem myndi hjálpa ykkur að vinna?

„Þeir eru orkumiklir og með mjög háa pressu. Lykilatriðið er að geta haldið í boltann, vera hugrakkir með boltann, þora að spila honum og leysa pressuna. Þá munu þeir þurfa að hlaupa án bolta og eyða orkunni í það. Þú verður að velja rétt, hvort þú eigir að sækja á fyrsta tempói eða halda aðeins meira í boltann. Þú verður að velja hvenær þú vilt fara aftur fyrir þá, það þýðir ekki að fara alltaf í fyrsta tempói aftur fyrir þá, þarf að teyma þá út og finna síðan svæðið fyrir aftan. Við þurfum að vera mjög hreyfanlegir og hugrakkir á boltann."

Fagnar fótboltanum sem KR spilar
Finnst þér skemmtilegt að horfa á KR?

„Mjög, það er mikil orka í þeim og mikið flæði í þeirra sóknarleik. Þeir eru djarfir og ánægjuefni að það sé lið að spila á þennan hátt í íslensku deildinni. Það er margt sem maður getur séð í þeirra leik og maður er að fara verjast á móti svona kerfi. Við þurfum að vera upp á okkar besta í varnarleiknum. Ég fagna þessu að sé eitt lið sem spilar á þennan hátt, það gerir okkur ennþá sterkari."

Þú ert hrifinn af þeirra leik, finnst þér þeir vara djarfir að þora að spila þennan fótbolta?

„Við sáum það í fyrra, Óskar byrjar á vegferð, kemur inn í KR og breytir miklu hjá þeim. Það hefur tekið sinn tíma, við erum að sjá á öðru ári hjá honum að þeir eru að gera betur en þeir gerðu í fyrra."

„Það örvar okkar að díla við öðruvísi andstæðinga, ég fagna því að KR sé að spila svona, gott fyrir íslensku deildina að fá öðruvísi fótbolta. Við lærum eitthvað af þeim og vonandi læra þeir eitthvað af okkur. Þannig höldum við áfram að bæta hvorn annan, það er heilbrigt að það sé góð samkeppni svo við bætum okkur sem lið."


Það er það sem ég er ánægðastur með
Hvernig líður þér með staðinn sem þið eruð á núna?

„Mjög vel, það hefur gengið rosalega vel, frammistaðan hefur verið mjög góð hingað til og mér líður vel með það. Við þurfum að halda áfram að sýna þennan stöðugleika, ég vil sjá frá liðinu núna að halda stöðugleikanum. Það vill oft til að menn fari að slaka á þegar vel gengur, en við höfum sýnt að við höfum ekki misst standardinn, það er það sem ég er ánægðastur með og við verðum að halda því áfram. Aðalprófið okkar er hvernig við nálgumst leikina og hvernig við komum inn í þá, frekar en hvað andstæðingurinn gerir."

Viðbúnir því að breytingar gætu orðið í glugganum
Víkingur er á miklu skriði, liðið hefur einungis gert eitt jafntefli á tímabili. Slíkur árangur vekur athygli og innan liðsins eru menn á aldri sem gætu heillað erlend félög. Óskar Borgþórsson hefur spilað virkilega vel, Daníel Hafsteinsson hefur spila vel á miðjunni, bakverðirnir Helgi Guðjóns og Karl Friðleifur hafa verið öflugir og það væri hægt að nefna fleiri.

Líður Sölva eins og það séu líkur á því að maður eða menn fari út frá Víkingi í komandi félagaskiptaglugga?

„Við erum alveg viðbúnir því að það gæti gerst og verðum að tækla það þegar að því kemur. Það er ekkert sem ég er að velta mér beint upp úr núna, það er bara næsti leikur og undirbúningur fyrir KR, en vissulega getur það alveg gerst að leikmenn fari út."

Ekki heyrt af viðræðum við Árna
Árni Vilhjálmsson hefur verið orðaður við Víking. Er eitthvað sem þú veist um það?

„Ég hef ekki heyrt af því nei, hefur ekki komið til mín og því efast ég um að það sé í gangi í Víkinni."

Stuðningurinn verið drifkraftur fyrir liðið
Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Endilega haldið áfram að vera eins og þið eruð búin að vera, stuðningurinn er búinn að vera geggjað, stuðningsmenn verið algjör drifkraftur fyrir okkur í sumar og gerir upplifunina og stemninguna miklu skemmtilegri fyrir leikmenn og alla í kring. Stuðningurinn er ómetanlegur," segir Sölvi að lokum.
'Við lærum eitthvað af þeim og vonandi læra þeir eitthvað af okkur. Þannig höldum við áfram að bæta hvorn annan, það er heilbrigt að það sé góð samkeppni svo við bætum okkur sem lið'

'Við lærum eitthvað af þeim og vonandi læra þeir eitthvað af okkur. Þannig höldum við áfram að bæta hvorn annan, það er heilbrigt að það sé góð samkeppni svo við bætum okkur sem lið'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'KR-ingar eiga hrós skilið fyrir sitt gengi í sumar, þeir hafa verið mjög flottiir'

'KR-ingar eiga hrós skilið fyrir sitt gengi í sumar, þeir hafa verið mjög flottiir'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Aðalprófið okkar er hvernig við nálgumst leikina og hvernig við komum inn í þá, frekar en hvað andstæðingurinn gerir'

'Aðalprófið okkar er hvernig við nálgumst leikina og hvernig við komum inn í þá, frekar en hvað andstæðingurinn gerir'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvíst hvar Árni spilar næst.

Óvíst hvar Árni spilar næst.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Stuðningurinn er ómetanlegur'

'Stuðningurinn er ómetanlegur'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við erum alveg viðbúnir því að það gæti gerst og verðum að tækla það þegar að því kemur'

'Við erum alveg viðbúnir því að það gæti gerst og verðum að tækla það þegar að því kemur'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við erum samt ennþá í júní, við skulum aðeins róa okkur, en vissulega spennandi og hörkuleikur framundan. Vonandi verður hann skemmtilegur'

'Við erum samt ennþá í júní, við skulum aðeins róa okkur, en vissulega spennandi og hörkuleikur framundan. Vonandi verður hann skemmtilegur'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.10+2828
2KR10+1525
3Fram9+920
4Breiðablik9+715
5Valur10-315
6ÍA9-412
7Keflavík10-711
8KA9-310
9Stjarnan10-410
10ÍBV10-68
11Þór10-196
12FH10-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.