Fotbolti.net
15.07.03 - 00:00

David Karanka til Murcia (Staðfest)

Framherjinn ungi David Karanka gekk í dag til lið við Real Murcia frá Atletic Bilbao fyrir aðeins 180,000 evrur en Bibao áskilur sér rétt til að kaupa hann aftur að tímabilinu loknu. Karanka sem var í láni hjá Murcia á síðasta ári skrifaði undir samning til þriggja ára.
Það á eftir að vera mikið stuð á Murcia þessa vikuna því þessi vika er kölluð "semana clave" eða lykilvikan og vísar til þess að þeir ætla sér að ná í lungan af þeirri tylft leikmanna sem þeirra þurfa fyrir mánudag. Strax á morgun er líklegt að Luis Garcia skrifi undir en hann kemur frá meisturunum í Madrid. Julio Álvarez mun væntanlega einnig koma á morgun en staðan með Nuñez er flóknari því hann hefur gert munnlegt samkomulag við Atletico Madrid en vill frekar vera í Murcia þeir tveir koma báðir frá Real Madrid.

Córdoba virðist svo ætla að selja þeim Javier Jaúregui á 300 þús. evrur en það kemur betur í ljós á morgun. Miðjumaðurinn Jovan Stankovic kemur svo líklegast frá Atletico Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.