Fotbolti.net
15.07.26 - 15:39
Elvar Geir Magnússon

Coventry að krækja í svissneskan varnarmann

Aurele Amenda.

Aurele Amenda.

Canon

Mynd: EPA

Coventry City er að ganga frá kaupum á svissneska varnarmanninum Aurele Amenda frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt fyrir rúmlega 17 milljónir punda.

Coventry er nýliði í ensku úrvalsdeildinni og hefur Frank Lampard lagt mikla áherslu á að fá Amenda.
Hann var með svissneska landsliðinu á HM en kom ekki við sögu á mótinu.

Amenda yrði þriðji leikmaðurinn sem Coventry fær í sumar; á eftir vængmanninum Loum Tchaouna sem kom frá Burnley og Frank Onyeka sem kom alfarið frá Brentford.

Lampard endurnýjaði samning sinn í sumar en liðið hóf undirbúningstímabilið á 3-2 tapi gegn Wimbledon í æfingaleik sem var leikinn fyrir luktum dyrum. Liðið mun næst mæta Northampton og Espanyol.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.