Fotbolti.net
15.07.26 - 21:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Fótboltinn kemur ekki heim eftir dramatíska endurkomu Argentínu

Lautaro Martinez var hetja Argentínu

Lautaro Martinez var hetja Argentínu

Canon

Mynd: EPA

England 1 - 2 Argentína
1-0 Anthony Gordon ('55 )
1-1 Enzo Fernandez ('85 )
1-2 Lautaro Martinez ('90 )
Ríkjandi heimsmeistarar Argentínu eru komnir í úrslit á HM eftir ótrúlega dramatískan endurkomusigur á Englandi í kvöld. Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir Englendinga sem ætluðu sér að vinna sinn fyrsta heimsmeistaratitilinn síðan 1966.

Það var mikil barátta í fyrri hálfleik en Ismail Elfath, dómari leiksins, dæmdi nítján aukaspyrnur og hvorugu liðinu tókst að ógna markvörðunum.

England braut ísinn snemma í seinni hálfleik. Morgan Rogers átti fyrirgjöf og Anthony Gordon komst fram fyrir Nahuel Molina og skoraði framhjá Emi Martinez.

Giuliano Simeone komst í dauðafæri í kjölfarið en Djed Spence bjargaði með glæsilegri tæklingu á síðustu stundu.

Þegar tuttugu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma átti Nicolas Gonzalez góðan skalla að marki Englands en Jordan Pickford varði frábærlega.

Það var vatnspása strax í kjölfarið. Stuttu eftir að leikurinn hófst aftur átti Alexis Mac Allister skalla að marki en boltinn fór í stöngina.

Argentína jafnaði metin þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma þegar Enzo Fernandez skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Lautaro Martinez tryggði Argentínu síðan ótrúlegan endurkomusigur þegar hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Messi þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Argentína mætir Spáni í úrslitum á sunnudaginn og fær tækifæri til að verja heimsmeistaratitilinn. England mætir Frakklandi í leiknum um þriðja sætið á laugardaginn.
Englendingar fagna marki Anthony Gordon

Englendingar fagna marki Anthony Gordon

Canon

Mynd: EPA

HM: Fótboltinn kemur ekki heim eftir dramatíska endurkomu Argentínu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.