Fotbolti.net
15.07.26 - 16:53
Elvar Geir Magnússon

Infantino á ferð og flugi - Skrapp til Katar í vikunni

Gianni Infantino, Ronaldo og Hákon krónprins Noregs.

Gianni Infantino, Ronaldo og Hákon krónprins Noregs.

Canon

Mynd: EPA

Óhætt er að segja að einkaþota Gianni Infantino hafi verið mikið notuð meðan á heimsmeistaramótinu hefur staðið. Hinn umdeildi forseti FIFA hefur mætt á eins marga leiki og mögulegt er.

Umfang heimsmeistaramótsins hefur aldrei verið stærra en það hefur verið haldið í þremur löndum og sextán borgum. Það eru miklar fjarlægðir milli keppnisvalla og Infantino hefur flogið á milli.
Tveir leikir á dag koma skapinu í lag
Infantino mætti á alla leikina á HM í Katar en það er óframkvæmanlegt á þessu móti. Á rúmlega tveimur vikum í upphafi mótsins hafði hann hinsvegar mætt á 24 leiki.

Hann hefur oft mætt á tvo leiki á dag en einkaþotan sem hann hefur til afnota er frá Katar, einn helsti styrktaraðili FIFA er Qatar Airways.

Hans lengst ferðalag á einum degi var 15. júní þegar hann flaug yfir 4 þúsund kílómetra frá Miami til Seattle til að sjá Belgíu spila gegn Egyptalandi og svo 1.545 kílómetra til Los Angeles þar sem hann mætti á leik Írans og Nýja-Sjálands um kvöldið.

Infantino er þekktur fyrir að vera duglegur að koma sér í mjúkinn hjá ríkustu og valdamestu einstaklingum heims og eftir að 8-liða úrslitunum lauk þá flaug hann til Katar til að votta emírnum Tamim bin Hamad Al Thani samúð sína þar sem faðir hans féll frá.

Ekki verið að baula á Gianni
Hann flaug svo aftur til Bandaríkjanna og var meðal áhorfenda þegar Spánn vann Frakkland í undanúrslitum í gær. Athygli vakti að þegar það kom mynd af Gianni Infantino í sjónvarpsútsendingunni heyrðist baul frá áhorfendum,

Fjölmiðlar segja hinsvegar að baulið hafi ekki beinst að Infantino því að á risaskjánum á vellinum hafi verið að sýna Jerry Jones, eiganda NFL-liðsins Dallas Cowboys en leikurinn var á AT&T leikvangnum, heimavelli liðsins. Kúrekarnir hafa ekki staðið undir væntingum síðustu ár og vinsældir eigandans ekki miklar.
Infantino og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada.

Infantino og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada.

Canon

Mynd: EPA

Infantino í Katar.

Infantino í Katar.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.