Fotbolti.net
15.07.26 - 13:15
Elvar Geir Magnússon

Metill telur Argentínu líklegri en þið eruð ósammála

Argentínumenn á æfingu.

Argentínumenn á æfingu.

Canon

Mynd: EPA

Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir leik Englands og Argentínu í undanúrslitum HM. Flautað verður til leiks á Mercedes-Benz vellinum klukkan 19:00.

Argentína er ríkjandi heimsmeistari en aðeins tvö lið hafa náð að verja heimsmeistaratitil sinn í sögunni.
HM í dag - England og Argentína mætast
TENGT EFNI

HM í dag - England og Argentína mætast

Argentína er með einn besta fótboltamann sögunnar, Lionel Messi, en skærustu stjörnur Englands á mótinu hafa verið Jude Bellingham og Harry Kane.

Hvort liðið er sigurstranglegra? Samkvæmt útreikningum Metils er Argentína með 60% sigurlíkur og England 40%.

Lesendur hafa meiri trú á Englandi en 56% spá enskum sigri í skoðanakönnun sem var á forsíðu. 44% spá argentínskum sigri.

Þegar stuðlar Epicbet eru skoðaðir er 2,76 á enskum sigri eftir 90 mínútur, 3,13 er stuðullinn á Argentínu og stuðullinn á jafntefli er 2,86.


Jude Bellingham.

Jude Bellingham.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.