15.08.26 - 11:48
Brynjar Ingi Erluson
Féll á læknisskoðun hjá Inter en er nú kominn til Palace (Staðfest)

Mynd: Crystal Palace

Mynd: Crystal Palace
Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace hafa fest kaup á hægri bakverðinum Anan Khalaili frá belgíska félaginu Union Saint-Gilloise fyrir 21 milljón punda.
Ítalíumeistarar Inter reyndu að kaupa Khalaili fyrr í sumar en hættu við félagaskiptin í kjölfar læknisskoðunar. Hann stóðst hins vegar læknisskoðun Palace og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning við félagið.
Þessi 21 árs gamli Ísraeli er ætlað að veita kólumbíska landsliðsmanninum Daniel Munoz samkeppni í hægri bakvarðarstöðunni.
Ekki er þó öruggt að Munoz verði áfram hjá Palace. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum, en hefur síðustu daga verið orðaður við Everton.
Khalaili, sem á sextán landsleiki fyrir Ísrael, er hæstánægður með félagaskiptin.
„Ég er ánægður með að vera kominn hingað. Ég er spenntur og get ekki beðið eftir að byrja,“ sagði Khalaili.
„Ég hef lengi fylgst með ensku úrvalsdeildinni og þetta er ný áskorun fyrir mig. Ég hef einnig fylgst með Palace lengi og er því mjög ánægður með að vera kominn til félagsins,“ sagði hann enn fremur.

South London's latest resident.
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) August 15, 2026
We are delighted to announce the arrival of Anan Khalaili from Belgian club Royale Union Saint-Gilloise on a long-term contract ????