15.08.26 - 11:08
Brynjar Ingi Erluson
Frá Fulham til Forest (Staðfest)

Mynd: Nottingham Forest

Mynd: Nottingham Forest
Þýski markvörðurinn Steven Benda er kominn til Nottingham Forest á frjálsri sölu, en hann var síðast á mála hjá Fulham.
Benda er 27 ára gamall og var varamarkvörður Fulham síðustu þrjú ár.
Þjóðverjinn lék með yngri liðum Heidenheim og 1860 München áður en hann gekk ungur til liðs við Swansea City. Hann var þar í nokkur ár en lék einnig með Millwall, Peterborough og Swindon. Á síðustu leiktíð var hann lánaður til Feyenoord í Hollandi.
Samningur Benda við Fulham rann út í sumar og hefur Forest nú samið við hann til eins árs, með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Honum er ætlað að veita Matz Sels samkeppni um markvarðarstöðuna á komandi tímabili.

Welcome to Nottingham Forest, Steven Benda. ????
— Nottingham Forest (@NFFC) August 15, 2026