Fotbolti.net
15.08.26 - 11:23
Brynjar Ingi Erluson

Fyrrum undrabarn og Gelhardt til Hull (Staðfest)

Fyrrum undrabarn og Gelhardt til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Hull City

Nýliðar Hull City hafa staðfest komu tveggja leikmanna. Frakkinn Lucas Gourna-Douath kemur frá Red Bull Salzburg og enski framherjinn Joe Gelhardt frá Leeds.
Gourna-Douath er 23 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður sem var eftirsóttur af nokkrum af stærstu félögum Evrópu fyrir fáeinum árum.

Hann komst á lista yfir hundrað efnilegustu leikmenn heims fyrir þremur árum, ári eftir að Salzburg keypti hann frá St. Etienne fyrir tólf milljónir punda, sem var á þeim tíma metfé í austurrísku deildinni.

Gourna-Douath hefur verið á láni hjá Roma og Le Havre síðustu tvö tímabil en fær nú tækifæri til að spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni með Hull.

Hull fær þar áhugaverðan leikmann sem var á sínum tíma líkt við Paul Pogba.

Félagið hefur einnig staðfest kaupin á framherjanum Joe Gelhardt. Hann er 24 ára gamall, kostar 6,5 milljónir punda og skrifaði undir langtímasamning.

Gelhardt hefur leikið með Hull á láni síðasta eina og hálfa árið og skoraði fjórtán mörk þegar liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.